Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Fresno

20. maí 2008 klukkan 01:28

Frekar margt hefur á daga mína drifið síðustu daga. Ég ætla nú samt ekkert að vera að fara yfir það allt. Ætla bara að setja inn nokkrar myndir. Systir Cathrine, hún Benedicte er búin að vera hérna síðan á fimmtudag og hún hefur sko aldeilis fengið að kynnast veðrinu í Fresno, það er búið að vera yfir 40°C síðustu viku.

Á laugardaginn fór ég í kveðjupartý til Marcellu. Við tókum fullt af myndum og átum á okkur gat :)

BF
Þetta eru 3 bestu vinkonur mínar hérna í Fresno :) Cathrine, Giovanna og Marcella.

sisters
Cathrine og Benedicte. Ein mynd fyrir fjölskylduna í Noregi að sjá :)

girls
Cathrine, Barbara, Giovanna, Bryndís og Marcella.

Dagurinn í dag er búinn að vera mjög fínn. Hlátur og grátur í sambland. Mom og Benedicte komu og sóttu okkur eftir skóla og við fórum og fengum okkur uppáhaldsísinn minn; Marble slab :) Svo eftir það fórum við og fengum nudd og ég steinsofnaði þar. Ótrúlega gott :)

Ég held ég hafi þetta ekkert lengra.

Sjáumst!
Bryndís Lilja

Prom '08

11. maí 2008 klukkan 10:15
Þá er Prom yfirstaðið. Laugardagurinn byrjaði nú bara mjög rólega, ég og Mia fórum og sóttum blómin í blómabúðina og svo var ég bara mest að dunda mér hérna heima þangað til kl. svona 1 þegar ég ákvað að skella mér í sturtu. Ég fór svo í greiðslu kl. 15 og var bara nokkuð ánægð eftir það :) Svo dreif ég mig bara heim og við systurnar fórum inn á baðið mom og dad og máluðum okkur og gerðum okkur fínar, svo skelltum við okkur í kjólana og hælaskóna og allt var klárt.

f. prom
Við að mála okkur :)

Mia, Bryn, Cath
Hérna erum við í stofunni áður en strákarnir komu.

Kl. 17 komu strákarnir. Við settum upp blómin og tókum svo nokkrar myndir. Mamma og pabbi Troy komu einnig og vildu taka fullt af myndum.

prom
Mia, Adrian, Cathrine, Conor, Bryndís og Troy.

Svo fórum við Troy heim til stelpu sem heitir Megan og hittum hópinn okkar þar og tókum fullt af myndum. Ég fékk að upplifa nokkuð sem að ég hef aldrei upplifað áður. Ég var sú eina ljóshærða og sú eina sem var alveg hvít...

h
Strákarnir í hópnum...!

girls
Stelpurnar í hópnum.

allir
Allur hópurinn saman

..
Besti vinur Troy, Travis og kærastan hans, Kiran

Svo kom limman og sótti okkur og við fórum á japanskan veitingastað, fengum mjög góðan mat þar. Eitt fannst mér þó alveg merkilegt, það var þannig að það var eldri hvít kona að labba út af veitingastaðnum og hún horfir á allar stelpurnar og labbar framhjá þeim, en segir síðan við mig hvað ég sé flott. Og það sást svo þvílíkt á henni að hún var með fórdóma gagnvart svörtu stelpunum... váá, mér fannst þetta alveg merkilegt, en sagði bara takk og brosti og lét sem ekkert væri.

Eftir matinn beið limman eftir okkur og keyrði okkur á promið sjálft. Við byrjuðum á því að fara í röð til að láta taka myndir af okkur og svo létum við líka taka hópmynd af okkur. Ég vona að það komi vel út. Svo var bara dansað og ég hitti aðeins Miu og Cathrine á ballinu.

bry og tina
Ég og Tina frá Þýskalandi á prominu, á salerninu reyndar en....haha

Svo eftir promið þá fórum við aftur í limmuna og rúntuðum aðeins um í henni og fórum svo heim til Travis þar sem að fullt af fólki var, auðvitað mestmegnis svertingjar samt, en það var nú allt í lagi. Svo keyrði Troy mér heim þegar ég var alveg við það að leka niður úr þreytu...

Já, svo að þetta var prom. Ég skemmti mér alveg rosalega vel :)

Gleðilegan Mæðradag Mamma mín :) Ég elska þig :**

Ég vil fá komment frá ÖLLUM núna :)

Bryndís...!

Maí

04. maí 2008 klukkan 02:09
Þar sem að það er kominn nýr mánuður þá held ég að það sé kominn tími á nýtt blogg líka. Jafnvel þótt ég hafi nú ekki mikið að segja þá hlýt ég að geta blaðrað eitthvað hérna.

Góði þýskukennarinn minn kom til mín í gær og hvíslaði að mér að þar sem að ég væri eini senior-inn í bekknum og væri með einkunnina A þá ætlaði hún að leyfa mér að sleppa því að taka lokapróf og gefa mér bara A á því :) Ekki slæmt það :) Ég þakkaði henni náttúrulega bara kærlega fyrir það.

Ég fékk kjólinn minn í síðustu viku og hann var of stór... :( Ég ætlaði bara að senda hann til baka og fá minni stærð en allt kom fyrir ekki, þau áttu bara stærri stærðir. Týpiskt, ha? Allavega þá komst ég að þeirri niðurstöðu eftir að vera búin að leita og leita að kjól að ég gæti ekkert fundið neinn betri þannig að ég er að láta minnka hann núna. Ég vona bara að það komi vel út.

Hagfræðikennarinn minn spurði mig hvort að ég væri að fara á prom með Troy og ég játaði því. Svo tók hann um 10 mínútur í að segja mér hversu frábær strákur hann væri. Ég stóð þarna eins og ég veit ekki hvað og sagði bara já! Ég vissi ekkert hvað ég ætti að segja, haha.

Það er vika í prom í dag, laugardag. Áðan fórum við Troy í blómabúð og pöntuðum blóminn á hendina mína og í barminn hans. Ég valdi hvítar rósir með silfurlituðum borða því að það passar vel við kjólinn minn. Eftir það fórum við svo bara á Jamba Juice. Ég ákvað að spurja hann hvað foreldrar hans hefðu sagt þegar þau fréttu að hann væri að fara með íslenskri stelpu á prom. Ég var mjög forvitin að vita það, haha. Hann sagði að pabbi sinn hefði heyrt um Ísland áður og að hann hefði heyrt að þar væru fallegar konur. hahaha.

Svo á fimmtudaginn fer ég í klippingu og litun, föstudaginn í neglur og fótsnyrtingu og á laugardaginn í greiðslu, hahaha. Hverjum finnst þetta vera eins og ég sé að fara að gifta mig? hahaha

Ég blogga svo aftur um næstu helgi eftir prom og set inn myndir :)

18. apríl 2008

19. apríl 2008 klukkan 02:23

Ég ætla að segja frá deginum mínum. Þetta verður nánast eins og dagbók þessi færsla.

Dagurinn byrjaði þannig að ég vaknaði og tók mig til fyrir skólann. Fór svo í skólann og fyrsti tíminn minn var þýska. Ég gleymdi reyndar að ég var að fara í glósukönnun, en ég rúllaði því nú bara upp :)

Svo næst fór ég í svokallaða ráðgjafartíma, allir koma saman í 2 tímanum og við fjöllum um ýmislegt, stress, próf, háskóla... Allavega þá er það alltaf fínt, ég sit með skemmtilegu fólki og svona. Troy fór reyndar aðeins fyrr því að hann var að fara að keppa. Hann bað mig um að gefa sér númerið mitt og sagði:

Hringdu í mig ef að eitthvað merkilegt gerist í ensku!

Við sitjum nefninlega líka saman í ensku og ég svaraði nú bara:

Já, ég geri það... en ég efast nú um að eitthvað merkilegt gerist...!

Svo fór ég í félagsfræði og hagfræði og það var ósköp venjulegt. Svo í síðasta tímanum fyrir hádegi fór ég í íþróttir og kennarinn sagði við mig:

Svoo Bryndís... var þér boðið á Prom í dag?

Neeii,
svaraði ég og var nú eiginlega bara pínu móðguð því að ég hafði ákveðið að fara ekki á prom því ég nennti ekki að fara án herra...

Allavega svo þegar ég var aðstoðarmaður kennara eftir hádegi þá var alveg brjálað að gera hjá mér, endalaus verkefni sem ég hafði og ég komst ekki einu sinni yfir það allt áður en að bjallan hringdi.

Þá var loksins komið að síðasta tímanum, ensku. Ég labbaði inn í bygginguna og sá Cathrine labba inn úr hinum endanum og beið eftir henni og svo löbbuðum við saman inn í stofuna. Allir horfðu rosalega á okkur. Frekar óþægilegt, en jæja, ég ákvað nú samt bara að halda áfram og labba að borðinu mínu. Hvað haldiði þá að hafi blasað við mér?

prom?
PROM?

Ég náttúrulega roðnaði öll og sá svo að það var kort við hliðina á kökunni og ákvað að kíkja inn í það og þar stóð:

Sorry I couldn't be there. Please call me! Troy Rush

Og svo var númerið hans þarna líka.

Svo leit ég upp og þar stóð enskukennarinn:

Og hvað? Ætlarðu að segja já?

Hún var svo spennt fyrir þessu öllu :) og ég sver að Cathrine var brosandi allan enskutímann því að hún var svo rosalega spennt :)

Þannig að núna ætla ég að fara að leita mér að kjól og svona. Prom er svo 10. maí.

Finnst ykkur þetta ekki sætt?

Sleepover

15. apríl 2008 klukkan 03:29

Það er að koma sumar hérna í Californiu, það er alveg á hreinu. Um helgina var um 30-35°C. Alveg æði sko. Ég lá hérna heima við sundlaugina á laugardaginn og baðaði mig í sólinni. Mjög ljúft. Svo á sunnudaginn fór ég til Giovanna sem er á vegum Rotary frá Brasilíu. Hún er nýbúin að skipta um fjölskyldu og býr í svona 20 mínútna fjarlægð frá mér. Hún og mamma hennar komu og sóttu mig og Marcellu og við fórum heim til hennar. Hún býr í geggjað flottu húsi sem stendur við vatn, allt voða girt og verndað. Hún er með sitt eigið risa baðherbergi og stórann fataskáp sem maður labbar inn í.

cali

Jæja, nóg um þægindi Giovanna. Við lágum úti í sólinni og reyndum að fá smá lit á okkur. Svo eiga þau bát sem að við fengum að nota. Þetta er rafmagnsbátur, mjög flottur með hátalarakerfi og geislaspilara. Við sigldum um vatnið og hlustuðum á tónlist og böðuðum okkur í sólinni, gerist varla betra. Við náðum reyndar aðeins að villast og fundum ekki húsið í svolítinn tíma. en það reddaðist nú á endanum. Við skemmtum okkur allavega rosalega vel og svo gistum við hjá henni og fórum svo bara allar saman í skólann um morguninn.

bry & mar
Hérna eru ég og Marcella í bátnum.

bry & gio
Ég og Giovanna :)

gio
Giovanna í sólinni :)

Ég setti allavega inn myndir fyrir þig, Sandra mín :)

Ég þarf að segja eina sögu hérna. Þannig er mál með vexti að ég var í enskutíma og við sitjum 5 saman á borði. Þessi stelpa segir við mig:

Hvaðan ert þú aftur? Þýskalandi?

Ég byrjaði eitthvað að rugla í henni og segja hin og þessi lönd eins og Kazakstan og Tyrkland og eitthvað þannig og segi svo á endanum:

Nei, ég er frá Danmörku!

Hún verður voða skrítin á svipin og segir svo:

Er Danmörk ekki fylki í USA?

Ég hélt ég myndi deyja úr hlátri. Þetta lýstir því bara hvað Bandaríkjamenn kunna ekkert í landafræði. Þessi sama stelpa gat nefnt 3 lönd í Evrópu; Þýskaland, Frakkland og Grikkland. Og ekki nóg með það að ég hefði hlegið endalaust mikið að þessu með Danmörku, heldur var hún ennþá viss á sínu máli og ákvað að spurja kennarann, já enskukennarann og spyr hana svo hvaðan ég sé því að hún sé alls ekki viss lengur. Þá segir enskukennarinn (þessi æðislega, indæla, þið vitið!)

Já, hún kemur frá einhverjum af þessum löndum þarna!

Ókey, ég er búin að vera í tímum hjá henni í 8 mánuði og hún veit ekki ennþá hvaðan ég er. Í síðustu viku vorum við Cathrine að labba útúr stofunni með Lorenu frá Brasilíu og við vorum bara þrjár og löbbuðum framhjá henni í dyrunum. Þá segir hún:

Bæ Lorena, sjáumst á morgun!

Svona er hún alltaf, ég gæti komið með endalaus dæmi um það hvernig hún er við okkur Cathrine.

Kvittið nú endilega :)

Apríl 2008

04. apríl 2008 klukkan 04:16
Já, það er eiginlega alveg ótrúlegt að hugsa til þess að það sé kominn April. Það er sko aldeilis farið að síga á seinni hlutann á skiptinemaárinu mínu, bara rétt um 3 mánuðir eftir. 8 vikur eftir af skólanum...ég er nú ekki mjög leið yfir því samt.

Það er búið að velja næstu skiptinema hérna á heimilið og höfðum við Cathrine mikil áhrif á það þar sem að Mia og Dad eru ekkert mikið fyrir að lesa svona prófíl um nemana, hehe. En þau ætla semsagt að vera með tvo skiptinema aftur á næsta ári því að þetta hefur gengið svona ljómandi vel :) Stelpurnar eru frá Þýskalandi og Belgíu og heita Ellen og Maureen. Ég talaði einmitt við Ellen á MSN í dag og hún spurði og spurði útí allt. Ég veit sko alveg hvernig henni líður núna, alveg eins og mér leið fyrir ári síðan. Allt rosa spennandi og maður að reyna að ímynda sér þetta allt. Ég gat sent henni myndir og sagt henni að hún yrði í herberginu mínu.
Ég neita því nú ekki að mér finnst hálf skrítið að hugsa til þess að einhverjar aðrar stelpur verði hérna á næsta ári í stöðu minni og Cathrine.

Helluborðið í eldhúsinu eyðilagðist um daginn þannig að þau þurftu að fjárfesta í nýju. En þar sem að þau eru svolítið stórtæk, þá í staðinn fyrir að fara í búðina og kaupa helluborð, ákváðu þau að kaupa helluborð, nýjan ofn, örbylgjuofn og uppþvottavél... já, allt annað en helluborðið var í fínasta lagi sko. En það var nú flottara að hafa þetta allt í stíl. Það eina sem ég hafði að segja um þetta var: "Viljiði ekki kaupa ísskáp í stíl líka eða?". haha. En þetta var nú allt sett inn í dag og lítur voða vel út auðvitað. Og af því að við höfðum nú svona voða fín tæki í eldhúsinu þá fórum við bara út að borða í kvöld, hahahaha.

Við fórum til LA um síðustu helgi til að sækja Miu á flugvöllinn, hún var að koma frá Ítalíu með frænda sínum. Við fórum aðeins í Nordstrom áður en við fórum á flugvöllinn og hvað haldiði, ég náði að versla mér 3 pör af skóm :D Við keyrðum einnig í gegnum Beverly Hills og svona. Ætlum samt að fara í LA ferð bráðum og gera allt þetta túristadót :)

En mig langar aðeins að tala um kennarana mína. Byrjum á enskukennaranum mínum. Hún hefur tekið upp á því núna að hata mig... já gaman að því, ha?
Allavega þá er ég semsagt í einhverjum menningarenskutímum og núna erum við að læra um kínverska menningu í Ameríku. Við erum að lesa bók sem ég nenni ómögulega að lesa og við Cathrine ákváðum bara að horfa á myndina, enda er bókin ólýsanlega óskiljanleg með trilljón kínverskum nöfnum.

Við tókum semsagt könnun í síðustu viku og 6 manneskjur náðu henni. Nei, ég var ekki ein af þessum sex (ég veit þið hélduð það). Svo að kennarinn sagðist ætla að hringja heim til allra sem náðu ekki. En hvað haldiði, hún hringdi bara heim til okkar!! Ekki það að mom og dad er alveg sama, hehh.
Svo í gær var hún að lesa einhverja bók fyrir okkur og eftir nokkrar blaðsíður tekur hún upp á því að biðja mig um að lesa upphátt fyrir allann bekkinn. Já, best að velja skiptinemann til að lesa upphátt. Og ekki nóg með það heldur var helmingurinn af orðunum á kínversku, ching-o og eitthvað álíka. HALLÓ, biddu asíska fólkið í bekknum að lesa þetta!!

Svo í dag vorum við að lesa einhverja  grein og auðvitað bað hún mig að lesa aftur! Allir í bekknum voru líka bara "ahh, you're mean".
Kennarinn heitir semsagt Mrs. Brandes og hún kallar mig bara sama nafni og hennar eigið, Brandes...

Jæja nóg af röfli. Þýskukennarinn minn, hún Ms. Ledford, á 4 syni sem hún ól upp ein. Yngstu tveir synir hennar eru tvíburar fæddi 1988, takið eftir 1988!! Þeir eru semsagt á öðru ári í Stanford University hérna í Californiu og spila körfubolta. Þeir eru báðir um 2,20 m á hæð. Annar þeirra er að skrifa 2 bækur núna og þeim finnst gaman af leiklist og söng og þeir eru alls ekki ómyndarlegir sko.
Núna í síðustu viku var tilkynnt að þeir væru að fara að spila í NBA. Þannig að núna er þýskukennarinn minn búinn að skila inn umsókninni sinni um að hún ætli að fara á eftirlaun eftir þessa önn. Ég held að hún geti bara byrjað að telja peninga sona sinna sko. Pældu samt í því, tvíburar og báðir valdir til að spila með NBA. Þetta er ábyggilega eins og draumur að rætast sko. Ekki slæmt!

Jæja, hvernig væri svo að skilja eftir sig lítið komment?
-Bryndís Lilja

Spring Break

24. mars 2008 klukkan 02:42

Gleðilega páska allir :)

Þá er vikuferðin mín til New York og Washington D.C. á enda, því miður. Ég held að orð fái því ekki lýst hvað það var gaman þannig að ég ætla að reyna að láta myndirnar tala :)

flugvél
Ferðalagið byrjaði á því að ferðast með þessari flugvél frá LA til New York. Þetta var geggjuð flugvél. Allir höfðu þinn snertiskjá og allt fór fram í gegnum hann. FULLT af tónlist og bíómyndum sko :) Mjög nice!

Central Park
Hérna er ég í Central Park í New York

Seinfeld
Og hérna er ég fyrir framan Tom's Restaurant Restaurant, staðinn þar sem þau í Seinfeld borða alltaf. Ég borðaði einmitt þarna :)

Times Square
Hérna erum við Cathrine á Times Square

UN
Elisabet, Thea, Cathrine (Noregur allar), ég og Mia (Danmörk) Við erum hérna fyrir utan United Nations með New York í baksýn


UN
Hérna erum við öll 42 inni í byggingu United Nations

empire state
Ég og Cathrine uppi í Empire State byggingunni :) geggjað útsýni

NYC
Eins og sjá má! New York City

Frelsisstyttan
Cathrine, ég og Mia frá Danmörku fyrir framan Frelsisstyttuna

group
Hópmynd fyrir framan hús George Washington

Roosevelt
Við hjá Roosevelt minnisstaðnum

washington
Ég að halda á Washington Memorial

Lincoln
Lincoln memorial hafa nú einhverjir séð í bíómyndunum líka :)

hvíta húsið
Hvíta húsið og ég :)

Lokakvöldið
Við borðuðum á Hard Rock Café síðasta kvöldið. Hérna eru Pablo (Chile) Hassan (Tyrkland), ég, Ozan (Tyrkland), Cathrine, Thea (Noregur), Gui (Brasilía) og Caroline (Danmörk)

flags
Ozan frá Tyrklandi með alla flottustu fánana :)

ísland
Ég að kynna Íslandið góða :)

Gui og ég
Gui frá Brasilíu og ég :)

heimferð
Ég og Cathrine á leiðinni heim...

Þetta var alveg geggjuð ferð í alla staði. Ég hefði aldrei trúað því að við gætum eignast svona mikið af góðum vinum á aðeins viku. Það var rosalega erfitt að kveðja þau öll. Ég veit ekkert hvort ég eigi eftir að hitta þau aftur eða hvað... En vonandi þó. New York er æðisleg og það er rosalega gaman að vera búin að sjá allt sem við sáum í Washington D.C. Ég hefði getað sett endalaust inn af myndum, en ég læt þetta duga núna. Það var líka svo æðislegt við að fara til Washington að hópurinn minnkaði að við urðum öll miklu nánari og opnari. Við vorum mest bara með einhverjum stelpum í New York en svo blandaðist hópurinn meira í Washington og við Cathrine vorum mjög mikið með 2 strákum frá Tyrklandi, strák frá Brasilíu og svo stelpu frá Danmörku, Mette.

Ég veit að ég á eftir að muna eftir þessari ferð það sem eftir er ævi minnar og ég held að við höfum öll verið sammála því sem fórum í þessa ferð.

Svo vil ég fá komment frá ykkur :)

Bryndís

Every fifteen minutes

08. mars 2008 klukkan 21:33
Þetta blogg er ekki fyrir viðkvæma!!!

Fyrir hádegi á miðvikudaginn þá heyrðist hjartsláttur í kallkerfinu í skólanum á fimmtán mínútna fresti. Hjartslátturinn var táknrænn fyrir þá sem deyja í bílslysi tengdu áfengisdrykkju. Klukkan 11 var svo öllum Juniors og Seniors safnað saman á körfuboltavellinum fyrir framan girðingu sem snýr að götunni. Þar var búið að setja á svið bílslys. Annar bíllinn var með drukkinn bílstjóra en hinn bílinn var með 3 stráka sem eru mikið í íþróttum. Lögregla og slökkvilið var með í þessu og það var hringt í neyðarlínuna og sjúkrabíll, slökkviliðsbíll og lögregla komu öll á staðinn og gerðu allt eins og þetta væri alvöru slys. Leikararnir voru nemendur Clovis West.

Hérna eru nokkrar myndir sem sýna hvernig þetta allt var. Ég vil taka það fram að ekkert af þessu er alvöru!!

..
Þessi átti að hafa flogið út um framrúðuna. Hún stóð sig mjög vel og hreyfði sig ekkert í þennan klukkutíma sem að tók að framkvæma allt.

slys
Hann stóð sig einnig mjög vel

slys

Svo á fimmtudaginn þá komum við öll saman í íþróttahúsinu og þar var búið að setja á svið réttarhöldin. Travis, bílstjórinn var dæmdur fyrir morð á 3 manneskjum og að hafa valdið lömun á einum einstaklingi. Hann var dæmdur í rúmlega 12 ára fangelsi. Það hefði verið lengra, en af því að hann hafði ekki verið á sakaskrá áður og stundaði íþróttir í skólanum og var með ágætis einkunnir þá fékk hann stysta dóminn.

Svo var búið að búa til myndband þar sem að öll sagan var sögð, af hverju þau hefðu verið að drekka, hvað hinir strákarnir hefðu verið að gera. Foreldrar krakkanna voru með í þessu og þeim var sagt að barnið þeirra væri dáið og flestir stóðu sig þvílíkt vel og léku þetta ótrúlega vel. Nema ein hún sagði: Oh, no, what am I going to do withour Natalie? og hún sagði þetta með svo engum tilþrifum, hehe. Svo voru líka örugglega svona 10 manneskjur, flestir nemendur, en allavega einn kennari sem að töluðu eins og þau væru dáin og  sögðu hvað þau væru þakklát fyrir og að þau myndu fylgjast með öllum frá himnum. Þetta var ótrúlega raunverulegt allt og ekkert smá sorglegt.

Það sást vel að það hafði verið lagt þvílíkt mikla vinnu og mikinn tíma í að gera þetta allt. En mín skoðun er að það er þörf á þessu í Bandaríkjunum, það er rosalega algent að krakkar keyri undir áhrifum. Það og eiturlyfjanotkun er líklega eitt stærsta vandamál bandarískra unglinga í dag. Sorglegt... Vonandi hefur þetta áhrif á einhverja allavega!

Þetta kennir okkur bara eitt; Don't drink and drive!

-Bryndís

Sacramento

04. mars 2008 klukkan 06:46

Já, góðann daginn...

Um helgina fórum við til Sacramento með AFS. Þetta er ein af þessum ferðum sem allir verða að fara í. Við fórum semsagt á laugardagsmorgun og sátum í pínulítilli rútu í einhverja 3 eða 4 tíma. Það er alltaf jafn gaman að hitta alla skiptinemana og spjalla við þá og heyra hvernig allt gengur hjá þeim. Sumir hafa þurft að skipta um fjölskyldu og aðrir hafa FITNAÐ, hahahaha... greyið stelpurnar sem að höfðu fitnað, það sést sko ekkert smá mikið á þeim :S Allavega vorkenni ég þeim mjög mikið, þetta hlýtur að vera hræðilegt. Ed (þessi sem kenndi okkur að rúlla svefnpokunum upp) er alltaf jafn leiðinlegur og dónalegur, hann talar líka ennþá við okkur eins og við séum 3ja ára og skiljum enga ensku! Frekar pirrandi.

Við gistum á Hosteli í miðbæ Sacramento. Það var mjög fínt niðri en svo í svefnherbergjunum á efri hæðinni þá þurftum við að sofa í kojum sem var nú ekki í miklu uppáhaldi hjá okkur, en það slapp nú alveg til. Ég lenti auðvitað í því að sofa í efri koju!

Annað sem að mér fannst ótrúlega skemmtilegt að sjá var það hvað mörgun hafði farið mikið fram í enskunni. Krakkar sem töluðu nánast enga ensku í byrjun voru orðnir mjög góðir og auðvelt að hafa samræður við það fólk. Nema einn frá Spáni, hann talar ofur hratt og með ofur þykkum hreim... ég forðaðist eiginlega bara að eiga samræður við hann... hehh

Við fengum líka að rölta í mallið þarna. Það var nú ekkert sérstakt, frekar gamalt og það voru nánast bara svertingjar þarna, allir sem unnu í búðunum og allir sem voru að hanga þarna... Ég hef EKKERT á móti svörtu fólki en þetta fólk var allt svona fólk sem er í klíkum. Ég var nú voða slök í versluninni, enda að spara fyrir New York núna :D Ég og Thea vorum að flippa út alla ferðina útaf spenningi, við erum svo rosalega spenntar fyrir þessu öllu :) Enda held ég að það sé ástæða til að vera það :D
Jæja, ég held að það sé best að ég setji inn einhverjar myndir fyrir ykkur :) Sérstaklega þig Sandra mín :) hehe

B&C
Hérna eru ég og Cathrine í mallinu.

Á sunnudeginum fórum við í hellaskoðun einhversstaðar 2 klst í burtu frá Sacramento. Ég hef ekki hugmynd um hvað staðurinn heitir ef ég á að segja satt :)
Hellaskoðunin var allt í lagi, þetta var risahellir frá 1850 eða eitthvað um það. Allavega þá tók þessi skoðun heillangann tíma því við fengum alla söguna um þetta! Svo fórum við nú bara á hostelið eftir þetta og fengum kvöldmat :)

hellaskoðun
Einstaklega falleg mynd af mér og Cathrine með flottu hjálmana í hellaksoðuninni :D

Svo var mánudagurinn tekinn í að skoða "ráðuneytið" í Sacramento. Við fengum túr þar um og sáum hvar öldungaráðið hittist og lögmannsstofuna þar sem að þeir búa til lögin. Svo fær fólk vanalega að sjá skrifstofu Arnold Schwarzenegger en ekki þennan dag því að hún var lokuð og það voru verðir fyrir utan=Arnold var þarna inni :D Ég get þó allavega sagt að ég hafi verið í sömu byggingu og hann :) Svo fórum við inn á skrifstofu, uuu... hvað á ég að kalla hann, vara-ríkisstjóra, já segjum það, hann er allavega ábyrgur fyrir því að leysa vandamál sem koma upp á meðan Arnold er ekki í Kaliforníu.

Bryndís vararíkisstjóri
Hérna er ég í stólnum hans :) tek mig bara nokkuð vel út þarna, ha?

Heimferðin var nú eiginlega bara ævintýri sko. Við fórum í þessari sömu litlu rútu, keyrðum til Stockton sem tók svona klst, stoppuðum þar á Starbucks og keyrðum svo einni stelpu heim sem á heima í Stockton. Þegar við vorum komin að húsinu hennar þá héldum við að annar strákur sem að á líka heima í Stockton myndi bara fara heim til hennar og fósturfjölskyldan hans myndi svo bara ná í hann. En nei, það var ekki þannig, við áttum að keyra honum heim. Það hefði kannski verið allt í lagi ef að hann hefði vitað hvar hann ætti heima... hann vissi götuheitið en ekkert meira. Svo vorum við að spurja hann hvort að hverfið sem við værum í væri kunnuglegt en hann bara svaraði ekkert! FRÁBÆRT. Chris sem var einn af sjálfboðaliðunum sem var með okkur ákvað þá að hringja heim til hans til að spurja hvernig ætti að komast heim til hans. Eftir samtalið sagði hann við strákinn: Er annar skiptinemi heima hjá þér? Það var semsagt bara einn heima og það var skiptinemi, sem að vissi heldur ekkert leiðina heim til hans. Fósturforeldrarnir voru í vinnunni og áttu ekki gemsa.
Við keyrðum um bæinn í svona 40 mínútur án árangurs og loksins fengum við réttar upplýsingar og gátum keyrt greyið drenginn heim. Þetta var að verða hræðilegt sko, enginn vissi hvert fara skildi.

Þessi ferð sem á vanalega að taka 3 tíma tók okkur 6 tíma! ÆÐI!!! En við komumst þó heim á endanum, það er fyrir öllu.

AFS
Við öll fyrir utan "The Capitol"

Ég og Cathrine erum ennþá að fá að heyra það að við lítum út eins og við séum alvöru systur, haha, það er bara fyndið :)

Látið ljós ykkar skína í kommentunum :)

Bryndís

Extra credit

21. febrúar 2008 klukkan 04:50
Jæja, það eru komin úrslit í spurningakeppninni ógurlegu!! :) og sigurvegarinn er:

ERNA ÁGÚSTSDÓTTIR


Ég er semsagt með 20 pör af skóm hérna í skápnum mínum...og ég get eiginlega lofað því að það á eftir að bætast við áður en ég kem heim :) Til hamingju með þennan stóra sigur, Erna. Þú færð hér með klapp á bakið frá mér!! :)
Svo vil ég bara þakka ykkur hinum fyrir góða þátttöku, ég held ég verði að hafa oftar svona keppnir, ég er ánægð með hvað margir kommentuðu :) Ég elska að fá komment :) það er það eina sem gerir það skemmtilegt að blogga :)

En út í aðra sálma! Það var boðið upp á extra credits í bæði félagsfræði áfanganum mínum og ensku, sem þýðir að maður hækkar í einkunn, ef maður myndi gefa blóð. Er það bara ég, eða er það ekki eitthvað pínu skrítið að skólinn múti manni að maður hækki í einkunn ef maður gefi blóð? Mér fannst þetta allavega eiginlega bara hálf fyndið, ef ég á að segja eins og er.
En auðvitað ákvað ég að drífa mig í kaffiteríuna og láta sjúga smá blóð úr mér. Fyrst þurfti að ég að gefa upp allar upplýsingar um sjálfa mig, sem tók nú sinn tíma því að kallinn var ekki alveg að skilja vegabréfið mitt. En að lokum tókst það og ég þurfti að svara fullt af spurningum. Ein spurningin var svona: Ef þú ert karlmaður, hefur þú stundað kynlíf með öðrum karlmanni síðan árið 1977? Þannig að ef einhver hefur stundað kynlíf með örðum karlmanni fyrir 30 árum þá má sá hinn sami ekki gefa blóð.  Þetta er alveg ótrúlega strangt. Svo voru allskonar spurningar, eins og hvort að ég hefði stundað vændi og eitthvað svoleiðis. Næsta skref að fara og láta stinga sig í puttann, sem var miklu verra en það leit út fyrir að vera, það hefur verið stungið svona áður í mig en það hefur aldrei verið svona vont. Allavega, svo fór ég bakvið eitthvað tjald með einhverri hjúkku og hún mældi blóðþrýstinginn og fór yfir spurningarnar með mér og ég þurfti að þylja upp öll löndin sem ég hafði farið til síðustu 3 ár og að lokum þá spurði hún mig hvort að ég hefði búið í Evrópu í meira en 5 ár og auðvitað svaraði ég því játandi.

Þannig að eftir að ég hafði farið í gegnum þetta allt, þá mátti ég ekki gefa blóð! Þvílík sóun á tíma, verð ég að segja. Ástæðan var semsagt kúariða... já, ég myndi nú líka vera skíthrædd um að ég væri með kúariðu ef ég væri að vinna þarna! haha!
En ég talaði við kennarana og þær sögðu mér að ég myndi fá extra credit af því að ég reyndi mitt besta :) JEI :)

Ég verð nú samt eiginlega að segja frá einu samtali sem ég átti við einn skólafélaga minn. Hann kom semsagt til mín og ákvað að tala við mig og samtalið var svona:

Jason: Oh, hey! Did you give blood?
Bryndís: No, they didn't want it.
Jason: They didn't want it? Why?
Bryndís: Oh, just because of this prostitute thing...
Jason: (með fyndasta svip í heiminum á andlitinu) what?

hahahaha :)

En ég læt þetta nægja í bili :) endilega látið vita af komu ykkar hingað inn :D

Bryndís -þessi með kúariðuna!!

Prófíll

  • Nafn: Bryndís Lilja Hallsdóttir
  • Staður: Sauðárkrókur
  • Um mig: Ég er 18 ára stelpa frá Sauðárkróki sem ákvað að leggja land undir fót og gerast skiptinemi í Bandaríkjunum. Ég bý í Fresno í Californiu og verð þar í ár.